... er annað nafn á þessari annars indælu borg skv. skipstjóra
nokkrum í Eyjum.
Hef reyndar voða lítið annað en gott um borgarlífið að segja...
gengur allt í haginn þannig lagað séð... en hef þó á tilfinningunni
að borgin laði fram mínar verstu hliðar... eitthvað jafnvel sem ég
hélt ég ætti ekki til ... 
Fór heim um síðustu helgi, fór til Drafnar í shine, lærði
smá, fór í heimsóknir, vann á Greifaballi... er enn með
"má ég fylgja þér heim... í nótt" á heilanum, gekk á
Heimaklett og verslaði allan lakkrís-Extra brjóstsykurinn sem til
var í Skýlinu og átti sem sagt afar dæmigerða helgi í Eyjum ...
alltaf ljúft... en sama var nú ekki á teningnum þessa helgina.
Jú jú... helgin byrjaði reyndar ágætlega... fór í Idolpartý í
Berjarimann, út að hlaupa þegar ég kom heim... nýju skórnir alveg
að gera sig, hljóp eins og vindurinn í 58 mínútur,
persónulegt met
... svaf til 10. Lærði, fór í ljós, í Kringluna og
svo á Nings með pönkaranum og svo um kvöldið í þetta fína
Júró-partý á Bergþórugötunni. Við vorum nú reyndar á
leiðinni heim um miðnætti, í engu stuði og grútsyfjaðar... en nei
nei... heim fórum við ekki. Endaði svo á skralli með skátanum
síkáta og uppskar timburmenn skv. því í gær ... er eiginlega enn
hálf dofin. Sé glöð fram á rólegar helgar á næstunni en það er nú
gott að geta gert vinkonur sínar stoltar!!! þó ekki alveg mín
stoltasta stund
... en fyndið kvöld engu að síður...