Í dagsins önnum... dreymdi mig :)

Sigurlaug Lára

20.10.2007 11:24:33 / sigingi

another day in the rain

Veit ekki alveg af hverju en alla vega næ ég allt í einu TCM rásinni. Hef nú sjaldnast tíma til að horfa á hana en geri undantekningu á laugardagsmorgnum. Er líka yfirleitt frekar heppin því þá eru  myndir akkúrat við mitt hæfi. Doris Day, Rock Hudson, Lana Turner, Rod Taylor, John Wayne og Deborah Carr ylja mér alltaf um hjartarætur og því bara ljúft að enda vikuna undir teppi með heimavinnu barnanna í fanginu og heitan tebolla. Hver fær staðist klassík eins og Gone with wind, Singing in the Rain og The Wizard of Oz?

Sonur minn er að komast í gott jafnvægi á nýjan leik og fór glaður í bragði til Eyja í gær eftir afar góðan dag. Var óvenju glaður í skólanum og síðan var afar skemmtileg hátíð í Vesturhlíð og komu margir góðir gestir. Ég er farin að kenna honum ensku með markvissum hætti þar sem við vorum hvött til þess að gefa honum fleiri krefjandi verkefni og nýta áhugasviðin hans þar. Það skemmtilegasta sem hann veit þessa dagana er að skoða Stubbasíðuna hjá BBC en þar er auðvitað allt á ensku svo hann er mikið að spyrja hvað allt þýðir og hvernig það er borið fram.

Annars er bara nóg að gera á öllum vígstöðvum en mitt stærsta verkefni er þó að hætta að hafa samviskubit yfir öllu og engu. Ekki hafa samviskubit þó ég hafi ekki alltaf 100% orku fyrir son minn, ekki hafa samviskubit þó ég sé ekki vinna til helst 10 á hverju kvöldi og ekki með samviskubit þó ég hafi ekki tíma til að læra 6-7 tíma á dag ... og umfram allt að hætta að hafa samviskubit þó vinir mínir viti ekki hvort ég sé lífs eða liðin dögum og vikum saman. Var aðeins tekin á beinið af góðri vinkonu í vikunni og lofaði ég henni að lofa sjálfri mér að njóta hvers dags án þess að hafa áhyggjur af öllu sem ég gæti gert betur. Ætli það séu fundir í Héðinshúsinu fyrir konur sem eru að berjast við sjúkdóminn SUPERWOMAN-SYNDROME?

Með von um að þið eigið góða helgi elskurnar mína nær og fjær ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 13:09:04 / sigingi

DYRA-PILLA - DYRA-PILLA

Ég var búin að sjá auglýsingu á Skjá 1 sl. viku og var því ákveðin í því að sjá House í gærkvöldi. En svo steingleymdi ég mér alveg og sá rétt síðustu 15 mínúturnar á plús. Ástæðan fyrir því að ég vildi endilega sjá þennan þátt er einfaldlega sú að sjúklingur House var einhverfur drengur á aldur við Georg.  

Það var nú lítið sem kom fram á þessum 15 mínútum sem ég gat tengt við mína reynslu. Ég hef jú reyndar hætt að vinna til að vera heima hjá syni mínum (þegar hann var 2ja ára) en aldrei breytti ég heimili mínu né garði í n.k. endurhæfingarstöð.  Drengurinn var mun verr staddur en Georg Þór og líf foreldranna var málað afar svörtum litum... eins og þau hefðu hreinlega ekkert tilhlökkunarefni, bara sorg. Georg færir mér oftar gleði en sorg en stundum finn ég  áþreifanlega fyrir ósýnilega veggnum á milli okkar og það nístir hjarta mitt að sjá hvernig þessi veggur hindrar hann í að taka þátt í “eðlilegu lífi”. Í lok þáttarins gengu foreldrarnir álútir út af spítalanum með drenginn sinn á milli sín. En þá tók drengurinn allt í einu hliðarspor og fór til dr. House, horfði í augu hans og rétti honum PSP spilarann sinn. Foreldrarnir brustu í grát og það sama gerði ég. Þetta var eitthvað sem ég gat tengt minni reynslu. Það eru þessir litlu sigrar sem snerta mann mest. Flest það sem aðrir foreldrar virðast telja sjálfsagt. 

Gígja frænka mín skammar oft og iðulega þegar ég gauka einhverju smáræði að drengjunum hennar og oft hef ég reynt að útskýra fyrir henni hversu litlar gjafir þetta eru í samanburði við hennar gjafir því þær eru mér ómetanlegar. Alltaf erum við velkomin til hennar þegar við förum norður. Við getum spjallað um allt og ekkert yfir óteljandi kaffibollum og ég veit varla af syni mínum. Sá eldri er ótrúlega þolinmóður og skilningsríkur við Georg. Leyfir honum að koma í herbergið sitt og er alltaf góður við hann. Sá yngri er fyrsti alvöru vinurinn sem ég hef séð son minn eignast. Þeir leika sér saman á jafningja-grundvelli; leika sér með dótið sitt, skoða bækur hvors annars, púsla, teikna, ærslast og kúra saman. Þessar samverustundir eru mér afskaplega dýrmætar og verða seint endurgoldnar. 

Það er gæfa mín eiga að þennan dreng en vissulega getur það verið erfitt  en það er byrði sem ég ber með glöðu geði... Þó foreldrar mínir hafi lítið af sér að gefa þá nægja vöggugjafir þeirra því frá pabba hef ég breitt bak og frá mömmu styrk ljónsins 8)

Georg Þór gefur mér mjög mikið af sér og hefur kennt mér svo margt. Hann horfir í augu mín og snertir hjarta mitt. Hann knúsar mig og kyssir daglega og nærir hjarta mitt með því vefja handleggjunum um háls mér. 

Ég hélt yrði ekki eldri í gær þegar hann var að reyna að segja mér hvað hann vildi horfa á í sjónvarpinu... DRRRRRRPIL.... mamma – ég vil horfa á DRRRRRPIL. Svo staglaðist hann á DRRRRRRPIL- DRRRRRPIL-DRRRPIL  og ég var að verða verulega frústreruð á því að skilja ekki upp né niður... En þegar ég kveikti á perunni þá bókstaflega grét ég af hlátri. Drengurinn er jú karlkyns og sonur föður síns í þokkabót og þolir því afar illa ef mamma hlær af honum svo hann varð virkilega pirraður og endurtók oftar og mun hraðar: DRRRRPIL – DRRRRPIL-DRRRRPIL-DRRRRPIL-DRRRPIL. Með erfiðismunum tókst mér að kveikja á sjónvarpinu og kveikja á Skjá 1 og leyfa barninu að horfa á DR. PHIL.


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 12:24:49 / sigingi

Haustlaufin falla

Er það ekki klárlega merki um að það sé OF langt síðan maður bloggaði síðast þegar maður man ekki lengur aðgangsorðið? 

Þetta var yndislegt sumar en því miður viðraði ekki jafn vel hjá syni mínum. Það nagar mann að innan að sjá þennan litla duglega  mann berjast við svona mikla vanlíðan. Maður finnur til svo mikils vanmáttar þegar maður hefur lofað þessu barni að gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera honum lífið sem ákjósanlegast en síðan stendur maður bara ráðalaus. Kosturinn við svona tímabil er að maður virkilega sér hverja maður á að og hvað maður er samt heppinn.  

Haustið, haustið komið er... syngur sonur minn hástöfum þessa dagana sem er merki um að honum líður örlítið betur. Þakka Guði fyrir að eiga góða að séð til þess að ég fékk tíma hjá sérfræðingnum á laugardögum þ.e. í frítíma læknisins góða. Fórum fyrir 3 vikum og aftur núna um helgina. Georg er núna kominn á nýtt lyf sem ég bind miklar vonir við... það er bara ekki hægt að horfa upp á svona mikla vanlíðan hjá barninu sínu. 

Ég keyrði feðgana á Bakka núna í byrjun mánaðarins en fór svo að hugsa á leiðinni hvað ég væri að eyða tíma í það að keyra alla leið á Bakka til þess eins að keyra svo alla leiðina tilbaka... svo ég dreif mig bara með þeim og notaði tækifærið og heimsótti Sigrúnu og Ella meðan þeir feðgar fóru á ættarmót saman. Litla dúllan þeirra er bara falleg og ég átti erfitt með að taka af henni augun... sat bara og dæsti. 

Þrátt fyrir vætusamt haust þá er þetta búinn að vera besti tími þessa árs. Ég var bara þokkalega ánægð í Laugarnesskóla en samt verður bara að segjast eins og er að ég svo margfalt ánægðari í nýju vinnunni. Þetta er þó lengra í burtu en ég er þó enga stund að komast þangað þar sem ég keyri á móti umferðarþunganum. Gallinn er þó sá að ég hef haft mun meira að gera en ég hafði gert ráð fyrir vegna ófyrirsjáanlegra atburða svo frítíminn er enginn. Georg Þór kemur í vinnuna til mín og eyðir þar með mér að jafnaði 2 klst. Þegar heim er komið og hann er saddur og sæll, kúrum við saman, lesum og syngjum þar til hann sofnar. Þá þarf að græja skólatöskuna hans og síðan koma sér í lærdómsgírinn... ja nema þegar ég tek hluta af vinnunni með mér heim. Ef ég voga mér að líta upp úr bókunum og kveikja á sjónvarpinu bregst ekki að ég sofna. og oftar en ekki kem ég það þreytt heim að ég fer bara að sofa og vakna frekar 5 til að læra ... en þetta verður nú eflaust ekki með þessum hætti nema núna til að byrja með... ég alla vega stóla á að svo verði ekki8|

Annars eru stór áform fyrir veturinn því  ég er ákv. í því að fara  bæði til Hollands og Danmerkur... auk þess sem ég ætla að vera duglegri að fara til Eyja. Fór bara 2x í fyrravetur og svo leið mér þegar ég kom þangað í júní eins og ég væri ókunnug en líka ansi mikið um að vera heima. Fólk er búið að flytja á milli húsa hægri-vinstri og ef það er ekki flutt þá er það að byggja við húsin sín eða taka þau í alveg í gegn. Fólk flautaði á mig á fullu en flestir á nýjum bílum svo ég veifaði alveg blint á móti. Fyrir utan það að bestu vinkonur mínar eru að fjölga mannkyninu og mér finnst frekar sárt að vita til þess að ég eigi eftir að missa af litlu vinunum mínum að mestu leyti. Verð að viðurkenna að núna í ágúst fann ég í fyrsta skipti fyrir virkilegri heimþrá... þ.e. það læddist að mér sú tilfinning að það gæti jafnvel verið gaman að flytja aftur heim.

Well – We´ll see about that  ;)

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 15:20:10 / sigingi

Sumarfrí í borginni

Síðustu 3 vikurnar í vinnu lofaði ég sjálfri mér því daglega að þegar ég kæmist í sumarfrí ætlaði ég að flatmaga heima hjá mér eða úti á svölum og gera ekki neitt !!! En á sama tíma hugsar maður um allt það sem maður hefur ekki tíma fyrir og lofar sjálfum sér að gera það í fríinu...  og því hef ég haft alveg meira en nóg fyrir stafni þessa fyrstu viku mína í fríi... en engu að síður... fyrsta alvöru sumarfríið mitt í mörg ár er hafið !!! 

Georg Þór fer á nokkur leikjanámskeið hjá Vesturhlíð í sumar enda eru 9 vikur í fríi heima með mömmu alveg meira en nóg af því góða.

Núna um helgina förum við þó í sumarbústað og eftir rúma viku förum til Eyja og ætlum að vera í 10 daga ... það verður nú bara dásamlegt að koma loksins heim. Ætla að fara til Ólafar og Drafnar í sjæn ... og með bílinn í smurningu. Maður er nú ekki alveg búin að sleppa takinu á Eyjunum... pínu lítið vanaföst ???

Ég hélt ég væri ótrúlega sniðug áðan þegar ég bjó mér til n.k. gos hérna heima. Ég sakna þess nefnilega að fá ekki lemonade að hætti Kanans á sumrin. Elskaði að fara með fjölskyldunni á State fair hér og þar ... og toppurinn var ekta heimalagað lemonade. Svo ég tók mig til og hálffyllti glas af frosnum sítrónusneiðum, pressaði safann úr einni sítrónu í skál og stráði splendu yfir en hvers konar sykur eða sætuefni gengur auðvitað. Síðan hellti ég þessu yfir sítrónurnar og fyllti glasið með sódavatni. Síðan settist ég niður og las Fréttablaðið... hmm... þar fann ég í aukablaðinu "Gott á grillið" uppskrift af lífrænu gosi n.t.t. á bls. 6. Svo maður er svo sem ekki einn um góðar hugmyndir. Þar sem ég á nóg af hindberju og myntu í miklum blóma úti á svölum þá held ég að það sé ekki spurning um að prófa þessa ágætu uppskrift við tækifæri.


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.05.2007 18:30:52 / sigingi

Þú veist að það er að koma sumar þegar...

  • þig langar meira í ískaffi en venjulegt
  • vorprófin skella á
  • þú hjólar í vinnuna
  • þú ferð að huga að kryddjurtum og sumarblómum
  • þú eyðir meiri tíma utandyra en innan
  • þú keyrir út úr bænum með topplúguna opna

Ég er alltaf í sjöunda himni þegar það er vor í lofti. Aftur á móti skellur maður samt allharkalega á jörðina þegar maður situr í Bláa lóninu með syninum og það skellur á haglél !!!

Fyrir þá sem vilja breyta útaf vananum og fá sér ískaffi:

Hálft glas af klaka og hálft glas af mjólk sett í blandara. Ég nota fjörmjólk en það má svo sem nota allt frá undanrennu til kaffirjóma. Ég strái ca. hálfri teskeið af Splendu yfir en það má alveg eins nota agave, hunang eða sykur og síðan er blandarinn látin vinna á þessu góða stund, alveg þar til þetta er orðið að þykku og góðu krapi. Þá helli ég þessu í stórt latté glas og fylli með kaffi. Þið notið bara eins sterkt kaffi og eins mikið og ykkur hentar. Koffínlaust kaffi eða Fireside Chai te hentar líka ágætlega. Síðan set ég rör í glasið og skelli mér í sólina út á svalir 8)

Að lokum vil ég bara óska ykkur gleðilegs sumars :D

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 23:08:57 / sigingi

Hvernig veistu að einhver á að vera að læra undir próf?

 

 

 

 

 

 

 

 

Hún er að skúra svalirnar hjá sér!!! Hversu langt er það nú gengið ? 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 15:40:57 / sigingi

LItli prinsinn minn er orðinn 7 ára

... og í tilefni af því er móðirin búin að vera nokkuð dugleg að bæta inn myndum og myndböndum... og er enn að. Það eru myndir úr afmælinu hans og fleiri myndir frá jólunum.

http://www.barnanet.is/georg 

Enjoy ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 12:41:41 / sigingi

Það er fallegt í henni Breiðuvík???

Ég eins og margir hef horft á Kastljósið undanfarna viku með kökkinn í hálsinum og tár í augum. Þegar sársaukinn skín úr andlitum þessara manna sem dvöldu í æsku í Breiðuvík og þeir jafnvel brotna í miðju viðtali þá sé ég ekki lengur fullorðna og harnaða menn... ég sé litla sorgmædda drengi sem mig langar mest að taka í fangið og hugga.

Las grein eftir konu sem kennir fjölmiðlun, þar sem hún fer hörðum orðum um þessa umfjöllun og kallar þetta tilfinningaklám. Næs múv! Ég er svo fordómafull gagnvart svona aumingja fólki sem vill enn draga gardínurnar fyrir svo enginn sjái bleika fílinn í stofunni hjá sér eða til að loka augunum svo þeir sjái ekki bleika fílinn sem er að rústa öllu í húsi nágrannans. Las líka umræður sem snerust um það hve hræðilega Þóra stóð sig í þessum viðtölum... hmm síðan hvenær eru fréttamenn vélmenni? Ekki hefði ég viljað vera í hennar sporum, taugaveiklunarviðbrögðin voru augljós en hún hélt samt andlitinu og fór ekki að gráta eins og ég hefði gert í hennar sporum. Nei... ég dáist að þessu fólki sem hefur tekið þessi viðtöl því þetta mál er með ólíkindum hreinlega. Skelfilega sláandi frá a-ö.

Sem betur fer er samfélagið sem við búum í að breytast. Ég er glöð og þakklát fyrir að búa í dag í samfélagi sem samþykkir ekki að börnum og þeim sem minnst mega sín sé misþyrmt á sál og líkama. Við finnum fyrir samkennd og við viljum gera eitthvað í málunum.

Þegar bein barnssálarinnar eru brotin á þennan hátt veldur það miklum sársauka og það sem verra er í þessu máli að þau fengu ekki að gróa á viðeigandi hátt. Það var ekki hlúð að brotinu og það greri seint og illa saman og olli þessum mönnum ævilangri bæklun á sálinni. Alla tíð síðan hafa þessir menn ekki getað gengið uppréttir og hafa fundið til sársauka í hverju skrefi og hverju handtaki. Sumir þessara manna hafa hreinlega kiknað undan álaginu og öllum sársaukanum  og fundið hvíld í dauðanum.

Núna stendur hópur þessara manna frammi fyrir því að segja hingað og ekki lengra... þeir vilja fá bót meina sinna sem þýðir að það þarf að brjóta upp gömlu beinbrotin og setja þessi barnsbein sálarinnar(eins og ég hef kosið að kalla þetta) saman á réttan hátt og vonandi geta þá þessir menn þá loksins gengið uppréttir eftir slíka meðferð og jafnvel þokkalega sársaukalaust.

Ég get ekki breytt því sem gerðist í Breiðuvík en ég get stjórnað því hvaða viðhorf ég hef til þessara manna. Ég geri heilmikið með því að sýna samkennd, skilning og hlýju í garð þeirra. Við berum öll ábyrgð á samfélaginu sem við búum í, því við leggjum öll eitthvað af mörkum. Hugsum okkar gang í samskiptum við aðra. Hugsum áður en við tölum. Verum sanngjörn og málefnaleg í umræðum... og munið að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:05:53 / sigingi

Úti er alltaf að snjóa...

Nei það skal ég viðurkenna að ég er á einhverju millibils-tímabili núna. Sakna jólanna frekar mikið, aðallega þess þó að vera ekki ennþá fyrir norðan og jú þess að geta ekki lengur sofið alla daga til hálf 12. Kannski þess vegna sem mér liggur ekkert á að taka niður jólaskrautið enda missti ég mig svo sem ekkert í skrautinu. Er að týna úr hillunum smátt og smátt en ætla að leyfa inniseríum og englum að vera aðeins lengur. Það eina sem hvarf fljótlega upp úr áramótum voru jóla-geisladiskar... engin jólalög lengur takk fyrir :lol:

Verð að viðurkenna að mér finnst svona veður afskaplega kósý, fór út í frímínútur í gær vegna manneklu á útivakt og væri nú alveg til í að gera það oftar... bara hressandi.

Við mæðginin erum á rólegu nótunum þessa dagana. Eftir stutta útiveru seinni partinn förum við bara í náttfötin og hitum okkur kakó og kúrum svo saman með bækur eða horfum á Harry Potter eða Cars.

Við fórum á þrettándagleðina í Eyjum og það var ótrúlega gaman. Sonurinn fann uppáhaldsjólasveininn sinn, hann Bjúgnakræki fljótlega upp á malarvelli og saman fóru þeir og hittu hina jólasveinana, Grýlu og Leppalúða og fullt af skrítnum tröllum, púkum og álfum. Mamman notaði tækifærið og kyssti og kjassaði þá Eyjaskeggja sem urðu á vegi hennar og er sárt saknað hérna í borginni... annars var ég nú með einhverjar hótanir að þetta yrði síðasta ferðin í bili þar sem ég varð illilega sjóveik á leiðinni til Eyja... efast nú um að ég standi við það hehe. En ferðin var ánægjuleg að mörgu leyti þó hún væri vissulega erfið að stórum hluta. Var í góðu yfirlæti hjá Sigþóru og fékk loksins tækifæri til að spila... sakna þessa afar mikið... elska að spila!!! En upp úr stóð samt þrettándakaffið hjá Önnu Gríms... réttar sagt Þuru og Óla en Georg var alveg með á hreinu að hann ætlaði þangað eftir fjörið að fá heitt súkkulaði og hitta Grýlu og Leppalúða. Mér finnst reyndar yndislegt að koma þangað og hitta Söru og krakkana og fleiri til. Svo er svo gaman að sjá muninn á Georg frá ári til árs. Í fyrsta skipti lék hann við börnin og aðallega Ólaf Þór ... sem er jafngamall honum. Þegar Sara og Pétur voru stuðningsfjölskyldan hans úti í Eyjum virti hann Ólaf ekki viðlits sem er því miður ansi eðlilegt fyrir dæmigerða einhverfu en þess vegna hlýnaði mér ansi mikið um hjartaræturnar að fylgjast með honum þarna og sjá hvað hann er búinn að þroskast mikið. Yndislegur þessi elska alveg hreint og yndislegt að vera velkominn í svona skemmtilegt kaffiboð á hverjum þrettánda. Þvílík læti þegar Grýla og Leppalúði létu svo sjá sig ásamt Kertasníki ... bara gaman :D

Nú er maður bara að leggja línurnar fyrir lokaritgerðina og síðan hefst törnin aftur í næstu viku... er búin að endurskoða skráninguna fram og tilbaka en held ég sé sátt að sinni. Er í einum landafræðiáfanga, tveimur söguáföngum, einum enskuáfanga auk kennslufræði og ritgerðar... svo það verður nóg að gera ... en eflaust afar skemmtilegt... og skemmtilegast að sjá loksins fyrir endann á þessu námi.

Ég er að fara af stað með verkefnamöppu fyrir 4.bekk um sólkerfið... ef þið vitið um skemmtilegt og fræðandi efni, almenns eðlis sem ég get nýtt mér þá megiði endilega senda mér línu.


» 8 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 03:54:26 / sigingi

Þrettaánda... gleði?

Gleðilegt nýtt ár!!!

Æ ég var eiginlega nett fegin þegar síðasta ár ... var bara búið... over... byrjum bara upp á nýtt. Samt hef ég ekki yfir neinu að kvarta... því ég þegar ég lít yfir farinn veg þá var 2006 frábært ár... eiginlega það besta ever... en það var bara aðeins OF lærdómsríkt... no pain no gain... og því synti ég kannski í gegnum stóra parta af árinu ... andlega fjarverandi.

Þjóðhátíðin var best... fyrir utan 15. desember... það verður einn sá besti dagur sem ég hef lifað um allnokkurt skeið ... algjört happy happy joy joy... jólin voru reyndar líka yndisleg ..frá a- ja þangað til Kiddi hringdi og lét mig vita að Steindór væri dáinn... þó ég væri búin að gráta út í eitt frá því hann veiktist var það samt ótrúlega sárt. Hann var bara einn af þessum karakterum sem hélt tilveru minni á floti. Síðan hann veiktist er ég búin að fara í gegnum eitthvað ferlega flókið sorgarferli því skúffa sem ég læsi yfirleitt og týni svo lyklinum ... opnaðist ekki bara ... heldur skall harkalega á gólfið ... á tærnar á mér og innihald skúffunnar út um allt. Veit eiginlega ekki hvað hljóp í hana Pollýönnu mína á þessu ári...

Núna langar mig ekki að fara að sofa því þegar ég vakna þá bíður mín sú staðreynd að ég er að fara í jarðarför... og þá get ég ekki lengur verið í afneitun... og verð að átta mig á því að þetta er staðreynd ... að lífið er bara ekki alltaf sanngjarnt og það er bara partur af prógrammet... like it or not...

En það sem heldur mér alltaf á floti er sonur minn... og ástvinir mínir... og vinir mínir. Ef það er eitthvað sem ég hef lært á árinu 2006 ... er að án þessa fólks væri líf mitt ... ja öðruvísi skulum við orða það ...

Gullkorn ársins:

... þegar við Georg Þór fórum á brennuna á gamlárskvöld  og björgunarsveitin var með geggjaða flugeldasýningu... og hann leit á mig, benti til himins og sagði:

"Það er bara þjóðhátíð á Skagaströnd!!!"

:lol::lol::lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 13:09:36 / sigingi

Svo lengi lærir sem lifir ;)

Ég tók samræmdu prófin vorið 1991 þá 16 ára gömul. Alla mína grunnskólagöngu gekk mér mjög vel í skóla og sérstaklega í stærðfræði... þangað til í 10.bekk er algebran fór að vefjast fyrir mér og n.t.t. orðadæmi með fleiri en einni óþekktri stærð. Það var alveg happa-glappa hvort ég gat leyst slík dæmi eða ekki og oft sat ég tímanum saman og urraði inni í herbergi.

Við fengum mjög góðan undirbúning fyrir samræmdu prófin þegar við vorum að safna fyrir skólaferðalaginu okkar  þar sem við fórum í lærdóms-maraþon og þar m.a. tókum við fleiri, fleiri gömul samræmd próf. Á hverju einasta þeirra strögglaði ég við 10% orðadæmi með fleiri en einni óþekktri stærð. Á mínu prófi gerðist svo nákvæmlega það sama... rúllaði öllu prófinu upp en sat í klukkutíma og reyndi að leysa þetta helv. orðadæmi... og gat það ekki!!! Fékk 9 á samræmda prófinu sem er frábært ... en ég var samt aldrei fyllilega sátt því þarna hafði ég rekið mig á vegg og beit svo í mig að ég gæti bara ekkert í algebru.

Alla menntaskólagönguna strögglaði ég við stærðfræðina... Gat ekkert... skildi ekkert og þakkaði mín sæla ef ég náði. 6 var gott og 7 var stórkostlegt...

Síðan byrjaði ég í Kennaraháskólanum... og fór fyrst í stærðfræðiáfanga sem var að miklu leyti kennslufræði en jafnframt var farið í sætiskerfi og flutninga. Mér til mikillar furðu skildi ég sætiskerfin og alveg upp á 10... en flutninga reyndi ég ekki einu sinni að skilja ... nei nei það er með þetta eins og algebruna... ég bara skil þetta ekki og get þetta ekki!

Síðan kom að næsta áfanga... ALGEBRU ÁFANGA... og ég gat ekkert, skildi ekkert  og fór svo ekki í prófið. Skráði mig aftur í þessa stærðfræði haustið 2005 og aftur gat ég ekkert, skildi ekkert og sagði mig úr prófi... Ætlaði að sjá til með endurtökupróf í ágúst... en nei... skráði mig ekki einu sinni í prófið. Svo loksins núna á lokasprettinum var málið bara að hrökkva eða stökkva. Auðvitað var komin þriðja bókin og í þetta skiptið kostaði hún 7500 kr. Ég arkaði í bóksöluna og fékk alveg þyngsli fyrir hjartað að eyða öllum þessum peningum í enn eina bókina sem ég hvort sem er myndi ekki skilja eða geta neitt í. Tveimur klst. seinna fæ ég símtal frá Hitaveitu Suðurnesja og ljós kom að ég átti inni hjá þeim um 7500 kr. síðan ég flutti frá Eyjum og var það millifært sama dag... svo mér létti nú aðeins. Lengi vel var bókin óopnuð á borðinu hjá mér... minnti helst á skrímslabókina með tennurnar í einni Harry Potter myndinni.

En svo tók ég mig taki og hugsaði með mér... ég skammta mér tíma per viku og geri mitt allra besta út frá því. Ætlaði nú ekki að fara að falla í hinum 14 einingunum og láta alla mína orku fara í að ná þessari helv. stærðfræði... og ég hófst handa við að reikna og þá gerðist það furðulega ... ég fór að skilja dæmin... og það sem meira er... ég fór að hafa virkilega gaman af stærðfræði.

Það var nokkuð góð tilfinning að fara bara að sofa kl. 11 í gærkvöldi og vakna bara vel hvíld kl. 6 í morgun. Fara í góða sturtu og renna aðeins yfir ákveðnar reglur. Fara í góðan göngutúr í fallega desemberveðrinu hérna í borginni og mæta svo vel stemmd í þetta próf.

En Adam var svo sem ekki lengi í Paradís... fyrsta dæmið á prófinu var... AUÐVITAР ALGEBRU-ORÐADÆMI MEÐ 3 ÓÞEKKTUM STÆRÐUM. Sat í 20 mínútur og gafst svo upp. Reiknaði allt prófið og þegar tæpur klukkutími var eftir að prófinu átti ég þetta eina dæmi eftir ... og gat ekki leyst það. Það sauð á mér... en eitthvað hefur maður nú lært á síðustu 15 árum því í stað þess að hugsa með mér ... ja týpískt ... ég bara get þetta ekki... ég bara skil þetta ekki... þá dró ég andann djúpt og hallaði mér aftur. Maulaði nokkrar möndlur og valhnetur og fékk mér vatn að drekka. Dró aftur djúpt andann og svo hófst lausnaleitin... og ... í þetta skipti hafði ég betur... Sigurður er 17 ára, Ólafía frænka er 87 ára og Birta er 12 ára!!! In your face!!! eins og drengirnir mínir í gamla bekknum mínum hefðu æpt upp í mínum sporum hehehe :haha:

Það var heldur betur glöð og ánægð, ung kona sem stóð upp þegar 20 mínútur voru eftir af prófinu og gekk út. Þó ég fái 5 á prófinu þá gæti mér ekki verið meira sama... ég sigraði gamla algebrudrauginn !!!

Megið þið eiga góða og gleðilega helgi :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 16:00:55 / sigingi

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Jólin, jólin alls staðar

með jólagleði og gjafirnar

Held að jólaskapið sé að fara úr böndunum á þessu heimili og ég nýt þess í botn. Kertaljós, jólaskraut, jólaseríur, bjölluhljómur, jólalög, jólagjafir og jólastemmning eins og hún gerist best. Heyrði í syninum í gær og minn var eitthvað efins um að það væri kominn desember... hann tók ekki súkkulaði-dagatalið með til Eyja og þegar maður er búinn að telja dagana þangað til það kemur desember og fær svo ekkert súkkulaði ... já þá er nú eitthvað verið að svindla á manni.

Við skreyttum allt fyrir viku síðan og ætlum síðan að setja útiseríurnar upp eftir prófið á morgun... það er nú gott að ég skuli hafa einhvern við höndina af hinu kyninu því ekki treysti ég mér til að ráðast í slíkt... og ekki dettur mér einu sinni í hug að reyna það ...  sumt ætla ég bara að fá að vera ósjálfbjarga með!!!

Hugmyndafræði kristninnar verður tækluð á morgun í bítið... og ég skal ná þessu... þó mér finnist ég alveg úti á þekju í þessu... note to self: velja frekar svona kommon sens áfanga!!! Gangi mér vel að blaðra mig út úr þessu hehehe.

Með Möttu í huga ákvað ég að styrkja Unicef og kaupa diskinn með laginu sem hún var að tala um... Baggalútur og Brostu ... og þetta er bara ágætis lag... fékk reyndar nóg þegar hann var búin að ganga um stund í bílnum... en gott lag engu að síður og gott framlag. Hér eru til tvö rauð nef og sonurinn var ekki lengi að grafa upp gleraugu í stíl ... við erum ægilega sæt saman, verð ég að segja ... hann með rauð læknagleraugu og rautt nef og ég með kókflöskubotnagleraugu og rautt nef 8)

p.s. Skyldi Pollýanna vera skyld Lauga Friðþórs??? Það hlýtur bara að vera 8|


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 00:18:13 / sigingi

Veðrið í Vestmannaeyjum

Hef oft heyrt frasann að Eyjamenn séu jafn mislyndir og veðrið þar... og sé það rétt... þá er ekki vafamál hvaða þorp býr í mínu sálartetri.

Sumir dagar eru bara þannig að það að við fáum allar gerðir af veðrum... Dagurinn byrjar með hlýrri golu og á góðum vinnustað, innan um gott fólk getur maður baðað sig í sólskini og yl. En þrátt fyrir góða veðrið þá er undirliggjandi spenna sem boðar storm... og spennan magnast hægt og rólega og myndar kvíðahnút í maganum. Og góða stund áður en stormurinn skellur á... ríkir kyrrð ... heimurinn er eins og stillimynd... og síðan ... skellur á suðaustanhvellur og þú finnur allt þyrlast upp í kringum þig og það er erfitt að ná fótfestu. Óveður geysar innra með þér og á slíkum stundum er alveg dæmigert að þegar þú stígur út úr bílnum, þá stígur þú beint í poll ... og áður en skynsemin fær rönd við reist, tekur þú nett tilhlaup og með fína leðurstígvélinu þínu fær Pollýanna að fjúka á haf út. Allt sem þú hélst að væri grafið og gleymt poppar upp í kollinn og þrátt fyrir að hafa trúað Pollýönnu mánuðum og árum saman ... fer blóðið gjörsamlega að sjóða að reiði...

Note to self: Það er ekki öllum hinum ökumönnunum að kenna að það geysar stormur ... þér var nær að setjast undir stýri í slíku veðri.

En síðan lægir skyndilega og þegar þú lítur upp í himinninn finnur þú lítinn regndropa falla á kinnina og áður en þú veist af er komin hellidemba... og eðlisávísunin segir manni að leita skjóls. Það er ótrúlega gott að komast í gott skjól eftir svona veður, þar sem þú getur þurrkað sjálfa þig og fötin þín, fengið eitthvað heitt að drekka og þegar þú lítur út um gluggann sérðu fallegan regnboga teygja sig þvert yfir himininn.

Ég veit ekki með ykkur en einstaka sinnum ... þá á ég afar mislynda daga. Sumir dagar eru bara erfiðari en aðrir ... en þegar ég lít um öxl þá er það ekki óveðrið sem ég man eftir... það er fallegi regnboginn !!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 14:22:47 / sigingi

Pirr !!!

Innlent | mbl.is | 19.11.2006 | 08:19

Aðstæður góðar í Hlíðarfjalli

Það er opið í Hlíðarfjalli í dag frá kl. 10-16. Klukkan 8 í morgun var 7 stiga frost og logn. Flestar lyftur verða í gangi og skíðafærið er troðinn þurr snjór. 5 km. gönguhringur er troðinn. Aðstæður til skíða og snjóbrettaiðkunar eru með besta móti, samkvæmt upplýsingum úr Hlíðarfjalli (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1236067).


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 12:58:36 / sigingi

Jei !!!

Einkunn nr. 2 á önninni loksins komin í hús... er bara afar sátt... enda varla hægt að kvarta yfir 9 og 9,4... nú bíð ég spennt eftir því að einkunnir fyrir önnur verkefni fari að skila sér.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox